Miðstjórn ASÍ ályktar um fjárlagafrumvarp og ráðstafanir í ríkisfjármálum
Ályktun um fjárlagafrumvarp og ráðstafanir í ríkisfjármálum
Miðstjórn ASÍ telur óhjákvæmilegt að ráðast í það erfiða verkefni að taka á hallarekstri ríkissjóðs. Ljóst er að það tekur nokkur ár að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi. Miðstjórnin leggur á það áherslu að stjórnvöld leggi fram tillögur sem taka á því hvernig jafnvægi verði komið á ríkisreksturinn á næstu árum og óvissu verði þannig eytt.
Miðstjórnarfundur haldinn 17. desember 2008 telur afar mikilvægt að varin verði staða þeirra sem minnst mega sín við þessar erfiðu aðstæður, s.s. elli- og örorkulífeyrisþega. Í þeim ráðstöfunum sem kynntar hafa verið vantar verulega á að þetta hafi verið gert. Heildarsamtök launafólks ákváðu því í síðustu viku að fresta öllum viðræðum um endurskoðun og gerð nýrra kjarasamninga vegna áranna 2009 og 2010 fram yfir áramót. Ef takast á að skapa ásættanlegan grundvöll að slíkri vinnu telur miðstjórn ASÍ nauðsynlegt að gerðar verði breytingar á eftirfarandi þáttum:
- Dregið verði úr niðurskurði vegna elli- og örorkulífeyris með upptöku frítekjumarks vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum.
- Unnið verði á næstu vikum að tillögum um það hvernig auka megi tekjujöfnunarhlutverk skattkerfisins.
- Sett verði lög um greiðsluaðlögun sem heimili niðurfærslu og skilmálabreytingu á húsnæðisskuldum heimilanna.
- Stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna til að auðvelda niðurfærslu húsnæðisskulda.
- Settur verði starfshópur með fulltrúum byggingarmanna til að fara yfir verklegar framkvæmdir og forgangsraða mannaflsfrekum framkvæmdum.
- Ráðherrar, þingmenn og æðstu embættismenn njóti sömu lífeyrisréttinda og aðrir opinberir starfsmenn.
- Staðið verði við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008.