Translate to

Fréttir

Miðstjórn ASÍ ályktar um greiðsluvanda heimilanna

Greiðslubyrði eykst - kaupmáttur rýrnar, þessu verður að snúa við. Greiðslubyrði eykst - kaupmáttur rýrnar, þessu verður að snúa við.
Á fundi miðstjórnar ASÍ var samþykkt ályktun um greiðsluvanda heimilanna. Í ályktuninni er aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart þeim vanda sem almenningur í landinu stendur frammi fyrir harðlega gagnrýndur. Öll getum við verið sammála um að alltof miklum tíma hafi verið verið eytt í Icesavemálin í stað þess að ráðast í verkefni sem snúa að því að verja stöðu almennings í landinu. Þá hefur ekkert komið frá stjórnvöldum sem gefa vonir um að stöðugleikasáttmáli sem aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu fyrr í sumar muni halda að óbreyttu.

Ályktun miðstjórnar ASÍ er eftirfarandi.

"Vandi heimilanna vex hröðum skrefum dag frá degi. Staða þeirra sem komin eru í greiðsluvanda fer stöðugt versnandi og þeim fjölgar hratt sem ekki sjá framá að geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar. Að óbreyttu mun ástandið aðeins versna næstu mánuði ekki síst í ljósi þess að á sama tíma og skuldir vaxa ört fer kaupmáttur minnkandi. Undanfarna mánuði hefur þessi aðkallandi vandi, sem snýr ekki síst að almennu launafólki í landinu, fengið litla athygli stjórnvalda. Það er með öllu ósættanlegt.


Fyrir liggur að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til af hálfu stjórnvalda og fjármálastofnana duga engan veginn til að mæta þeim vanda sem við blasir. Alþýðusambandið hefur margoft bent á að þær væru alltof seinvirkar, ómarkvissar og skiluðu mjög takmörkuðum árangri. ASÍ hefur ítrekað krafist úrbóta.


Ríkisstjórnin verður að bregðast strax við og koma með raunhæfar og virkar aðgerðir til að létta skulda- og greiðslubyrði heimilanna áður en fólk missir alla von um mannsæmandi afkomu á næstu árum. Alþýðusambandið leggur áherslu á að allar leiðir til lausnar fjárhagsvanda heimilanna verði skoðaðar og lýsir sig reiðubúið til að taka þátt í þeirri vinnu."

Deila