Námskeið um varmadælur
Laugardaginn 26. mars verður haldið námskeið á vegum Iðunnar - fræðsluseturs um varmadælur, ætlað pípulagningamönnum og öðrum lagnamönnum.
Varmadælur geta sparað verulegan kostnað við kyndingu húsa á köldum svæðum. Á þessu námskeið er í boði að afla sér þekkingar á varmadælum og notkun þeirra í byggingum. Farið í uppbyggingu og gerðir varmadæla, tengingar, stillingar og lokafrágang.
Kennarar verða Lárus Bjarnason og Gunnlaugur Jóhannsson frá Kyndingu ehf.
Námskeiðið verður í Baldurshúsinu, Pólgöta 2 á Ísafirði laugardaginn 26. mars. kl. 11.00 - 16.00.