Ný deildarstjórn Sjómannadeildar kosin
Ný deildarstjórn Sjómannadeildar kosin var kosin til tveggja ára á aðalfundi deildarinnar sem haldinn var 2. Jóladag. Stjórn deildarinnar skipa:
- Formaður: Sævar Gestsson
- Varaformaður: Grétar Þór Magnússon
- Meðstjórnandi: Hörður Snorrason
- Varamaður: Ómar Sigurðsson
- Varamaður: Jón B. Hermannsson
Við óskum þeim til hamingju með kjörið og velfarnaðar í störfum fyrir félagið. Einnig þökkum við fráfarandi stjórnarmönnum, Höskuldi Gunnarssyni og Ólafi Kr. Skúlasyni, óeigingjörn störf í þágu félagsins um árabil og óskum þeim alls hins besta.
Hlutverk stjórnar sjómannadeildar Verk Vest er að vinna að hagsmunamálum sjómanna í víðu samhengi, þar með talið kjarasamningum og öðrum sérhagsmunamálum stéttarinnar.