Translate to

Fréttir

Ný stjórn Brynju deildar Verk Vest á Þingeyri

Gunnhildur Elíasdóttir, Ragnheiður H. Ingadóttir, Ísleifur Aðalsteinsson ásamt Þorgerði Gunnlaugsdóttur Gunnhildur Elíasdóttir, Ragnheiður H. Ingadóttir, Ísleifur Aðalsteinsson ásamt Þorgerði Gunnlaugsdóttur

Á aðalfundi Brynju, deildar Verk Vest á Þingeyri, sem haldinn var 10. janúar 2011 var kjörin ný stjórn og varamenn. Gunnhildur Elíasdóttir verður áfram formaður deildarinnar, Ísleifur Aðalsteinsson varaformaður og Ragnheiður H. Ingadóttir ritari. Í varastjórn voru kosin, Þorgerður Gunnlaugsdóttir, Sigurjón Hákon Kristjánsson og Katín I. Steinarsdóttir. Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður nýja stjórnarmenn velkomna og þakkar fráfarandi stjórnarmönnum góð störf í þágu félagsins. Gestir fundarins voru þeir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest og Ólafur Baldursson, varaformaður Verk Vest.

Deila