Translate to

Fréttir

Ný stjórn í sjómannadeild Verk Vest

Um borð í Páli Páls á sjómannadegi Um borð í Páli Páls á sjómannadegi
Á deildaraðalfundi sjómanna í Verk Vest sem haldinn var í gær var kjörin ný stjórn, en hana skipa eftirfarandi: Sævar Gestsson, formaður, Grétar Þór Magnússon, varaformaður, Ólafur Skúlason, meðstjórnandi. Til vara eru Magnús Björgvinsson, Símon Viggósson og Höskuldur B. Gunnarsson. Á fundinum urðu líflegar umræður um kjaramál sjómanna, þá voru öryggis- og fræðslumál einnig mjög til umræðu enda hverjum sjómanni nauðsynlegt að vera vel að sér í öryggismálum. Á fundinum var einnig farið yfir helstu breytingar á reglum um lögskráningu sjómanna sem tóku gildi 1. nóvember síðast liðinn. Verk Vest býður nýja stjórnarmenn velkomna til starfa.
Deila