Ný verðkönnun ASÍ
Minnstur verðmunur í könnuninni var á ¼ l. rjóma frá MS, sem var ódýrastur á 219 kr. hjá Fjarðarkaupum en dýrastur á 228 kr. hjá Iceland, Nóatúni og Samkaupum Úrval, verðmunurinn er 9 kr. eða 4%. Mestur verðmunur í könnuninni var á perum sem voru ódýrastar á 225 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en dýrastar á 589 kr./kg. hjá Víði, verðmunurinn er 364 kr. eða 162%.
Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Holtagörðum, Krónunni Lindum, Nettó Akureyri, Iceland Engihjalla, Víði Hringbraut, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Hagkaupum Holtagörðum, Nóatúni Hringbraut og Samkaupum - Úrval Ísafirði. Kostur Dalvegi neitar þátttöku í könnuninni. Nánari upplýsingar um könnunina veitir Ólafur Darri Andrason yfirmaður Hagdeildar ASÍ.