Translate to

Fréttir

Nýjir kjarasamningar fyrir verslunar-, skrifstofu- og iðnaðarfólk í Verk Vest undirritaðir

Landssamband íslenskra verslunarmanna (LÍV) og Samiðn hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir félagsmenn í Verk Vest. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir frá 1. nóvember 2022 og rennur út 31. janúar 2024. 

Samningurinn felur í sér umtalsverðar kjarabætur. Frá og með 1. nóvember 2022 hækka mánaðarlaun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum um 6,75% en þó að hámarki um 66 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin felur í sér flýtingu og fullar efndir hagvaxtarauka sem koma átti til greiðslu þann 1. maí 2023.

Samhliða almennum launahækkunum hækka kauptaxtar og nýjar launatöflur taka gildi sem innifela krónutöluhækkanir frá kr.36.015 á byrjendataxta afgreiðslufólks til kr. 52.131 í kjarasamningi LÍV. Grunntaxti iðnaðarmanna hækkar um kr.46.000 ásamt nýrri launatöflu sem gefur viðótar starfsaldurshækkanir. Desember- og orlofsuppbætur taka einnig hækkunum. Desemberuppbót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofsuppbót verður 56.000 kr. 

Markmið samninganna er að styðja við kaupmátt launa auk þess að veita heimilum og fyrirtækjum fyrirsjáanleika á miklum óvissutímum. Samningurinn byggir undir stöðugleika og skapar forsendur fyrir langtímasamningi. Með áherslu á að verja kaupmátt í samningi til skamms tíma er það ásetningur samningsaðila að skapa fyrirsjáanleika á miklum óvissutímum - fjölskyldum og fyrirtækjum til hagsbóta.

Nú taka við kynningar og atkvæðagreiðslur um samninginn og hefur LÍV ákveðið að vera með rafræna atkvæðagreiðslu sem verður haldin frá kl. 12 á hádegi 14. Desember og standi til 12 á hádegi 21. Desember. Farið að lögum Verk Vest um framkvæmd kosninga, enda sé slíkt á ábyrgð félagsins. Þannig að Verk Vest mun framkvæma atkvæðagreiðslu með sambærilegum hætti og er með SGS samninginn.

Deila