Translate to

Fréttir

Nýr beitningasamningur undirritaður

Unnið við uppstokkun á Flateyri Unnið við uppstokkun á Flateyri
Magnús S. Magnússon f.h. SGS og Halldór Ármannsson f.h. LS að lokinni undirritun samningsins Magnús S. Magnússon f.h. SGS og Halldór Ármannsson f.h. LS að lokinni undirritun samningsins

Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.Viðræður hafa staðið yfir frá því í sumar og eftir nokkuð strangar viðræður undanfarnar vikur náðu samningsaðilar loks saman í gær. Á fundi framkvæmdastjórnar SGS sem fór fram fyrr í dag var samningurinn tekinn til afgreiðslu þar sem hann var samþykktur samhljóða.

Aðalatriði samningsins er hækkun kauptryggingar í rúmlega 300.000 kr. á samningstímanum, en samningurinn gildir  frá 1. maí 2015 – 31. desember 2018. Kauptrygging og aðrir launaliðir taka hækkunum sem hér segir: 9,5% frá 1. maí 2015, 8,0% 1.maí 2016, 4,5% 1. maí 2017 og 3,1% 1. maí 2018. Desember- og orlofsuppbætur hækka í takt við það sem áður hafði verið samið um í aðalkjarasamningi SGS og SA, en í lok samningstímans verður desemberuppbót kr. 89.000 og orlofsuppbót kr.  48.000. miðað við fullt starf.

Hægt er að nálgast eintak af samningnum á heimasíðu SGS

Deila