Nýr framkvæmdastjóri hjá Starfsgreinasamband Íslands
Drífa hefur nýlokið meistaragráðu í vinnumarkaðsfræðum frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð en er einnig menntuð tækniteiknari frá Iðnskólanum í Reykjavík og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Áður hefur hún starfað sem framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Samtaka um Kvennaathvarf. Drífa hefur látið sig málefni vinnumarkaðarins varða bæði í gegnum Iðnnemasamband Íslands á árum áður og í gegnum nám sitt. Í lokaverkefni sínu í viðskiptafræði fjallaði Drífa um kjarasamningagerð og launamun kynjanna en meistararitgerðin fjallaði um lagaumhverfi starfa sem unnin eru inni á heimilum. Þá hafa jafnréttismál verið henni hugleikin og hefur hún skrifað fjölmargar greinar og pistla á því sviði. Drífa er búsett í Reykjavík ásamt dóttur sinni.
Starfsgreinasambandið býður Drífu velkomna til starfa og óskar henni velfarnaðar í störfum sínum fyrir sambandið.