Translate to

Fréttir

Nýr námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða

Nýr námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er kominn í dreifingu og ætti að berast inn á heimili á Vestfjörðum á næstu dögum.  Að vanda kennir ýmissa grasa í námsvísinum en upplýsingar um innihald hans má einnig finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar.

Félagsmenn Verk Vest eru hvattir til að skoða þá fjölbreyttu námsmöguleika sem eru í boði, bæði starfstengda og tómstundanám. Félagsmenn geta sótt um námsstyrki til starfsmenntasjóða sem félagið er aðili að, en styrkirnir geta numið allt að 75% af kostnaði vegna náms.

Deila