Translate to

Fréttir

Nýr skrifstofustjóri tekur til starfa

Friðgerður Ebba Sturludóttir Friðgerður Ebba Sturludóttir

Eins hefur komið fram hér á vefnum þá var auglýst eftir skrifstofustjóra fyrir skrifstofu verkalýðsfélaganna á Ísafirði.  Alls bárust 18 umsóknir um starfið, allt mjög hæfir einstaklingar. Úr hópi umsækjanda var ákveðið að ráða Friðgerði Ebbu Sturludóttur.  Ebba mun koma í stað Karitasar Pálsdóttur sem hefur þjónað félagsmönnum hátt í 30 ár, bæði í trúnaðarstörfum og sem starfsmaður skrifstofu félaganna á Ísafirði. Ebba tók formlega við af Karitas frá og með áramótum en þá mun Karitas láta af störfum. Karitas mun þó áfram sinna trúnaðarstörfum fyrir Verk Vest til loka núverandi kjörtímabils. Um leið og Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður Ebbu velkomna til starfa þá eru Karitas sendar árnaðaróskir og þakkir fyrir óeigngjörn og samviskusamlega unnin störf fyrir verkalýðshreyfinguna undanfrana áratugi.

Deila