Nýtt félaga- og iðgjaldakerfi hjá Verk Vest
Nýtt tölvukerfi, Jóakim, hefur verið tekið í notkun hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Auk þess að vera félaga- og iðgjaldakerfi þá heldur það utan um orlofsíbúða- og órlofshúsaleigur sem og styrki allskonar.
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að uppfæra bókhaldið frá gamla kerfinu yfir í það nýja. Í tengslum við breytingar í bókhaldsvinnu hefur fyrirtækjum sem, annað hvort hafa ekki staðið í skil á stéttarfélagsgjöldum eða gleymt að senda skilagreinar verið send áminning þess efnis.
Er þess vænst að fyrirtæki taki vel í áminninguna og geri skil eða hafi samband vakni spurningar. Hægt er að senda fyrirspurnir til skrifstofunnar á netfangið ebba@verkvest.is