Opnað fyrir umsóknir fyrir páskavikuna !
Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir páskavikuna 2019 fimmtudaginn 14. febrúar kl. 8:00.
Orlofshúsin sem eru í úthlutun: Bjarnaborg, íbúðir í Reykjavík og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Ekki er hægt að sækja um ákveðin hús/íbúð að undanskilinni stóru íbúðinni í Reykjavík.
Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og sótt um með því að velja: Páskar. Hægt verður að sækja um einn aðalkost og annan til vara. Páskavikan sem er í boði er yfir tímabilið: 16. – 23. apríl 2019
Vikan kostar 30.000.kr. (Íbúð 605 33.000.kr.) og 18 punkta. Þeir ganga fyrir í úthlutun sem eiga flesta punkta.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 24. febrúar 2019.
Úthlutun fer fram 25. febrúar og munu allir þeir sem sóttu um fá senda niðurstöðu úthlutunarinnar í tölvupósti. Gott er að félagsmenn yfirfari upplýsingar um netfang og símanúmer á orlofsvefnum til að tryggja að allt sé rétt skráð. Það er hægt að gera með því að velja: „Síðan mín“ á rauða borðanum og svo „Mínar upplýsingar“ vinstra megin á síðunni.
Starfsfólk mun aðstoða félagsmenn eftir þörfum við umsóknir á vefnum í síma 456 5190