Opnun leigutímabils verður 18. nóvember
Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur fest kaup á sex nýjum íbúðum í Sunnusmára 16-18 í Kópavogi. Nýju íbúðirnar eru í ca. 200 metra fjarlægð frá Smáralind auk þess sem fjöldi þjónustuaðila er í næsta nágrenni s.s læknar, tannlæknar ofl. Þessa dagana er unnið að því að gera íbúðirnar tilbúnar til útleigu fyrir félagsmenn. Einnig er verið að selja íbúðir í Ásholti og Hagamel. Af þeim sökum verður ekki hægt að opna á næsta leigutímabil fyrr en flutningar eru afstaðnir og allt er klárt í nýju íbúðunum.
þann 18. nóvember verður því opnað fyrir leigu tímabilsins 3. jan 2020 til 16. maí 2020.
Rétt er að benda félagsmönnum okkar á að bygginga framkvæmdir standa enn yfir í hverfinu. Af þessum sökum geta félagsmenn okkar orðið fyrir einhverju ónæði meðan á framkvæmdir eru í gangi.