Translate to

Fréttir

Orlof og orlofsuppbót 2010

Samkvæmt 4. gr. orlofslaganna er orlofstímabilið frá 2. maí - 15. september og skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu. Þó er heimilt samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna að stytta orlofið á tímabilinu þannig að aldrei verði veittir færri en 14 dagar samfellt á sumarorlofstímabilinu, enda liggi sérstakar rekstrarástæður að baki. Í því samhengi er rétt að benda á að sé orlof tekið utan ofangreinds orlofstímabils að ósk atvinnurekanda þá lengist orlofið um 25%.  Þau fyrirtæki sem hyggja á sumarlokun ber að gera það með minnst 1 mánaðar fyrirvara og skal sú ákvörðun liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl þannig að hún nái til allra starfsmanna.

Helstu breytingar sem verða á þessu orlofsári er að hjá verkafólki sem hefur starfað 5 ár hjá sama fyrirtæki eða 10 á í sömu starfsgrein bætist við 1 dagur. Þannig að heildar orlofsréttur verður 30 dagar og 13,04% orlofslaun.
 
Þá er einnig rétt að minna á orlofsuppbótina en hækkunum sem þar eiga að koma inn samkvæmt gildandi kjarasamningi hefur ekki verið frestað. Orlofsuppbótina ber að greiða þann 1. júní ár hvert til allra starfsmanna sem hafa verið samfellt í starfi hjá sama atvinnurekenda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum. Greiðslan skal miðuð við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu.

ORLOFSUPPBÓT 2010
Hjá verkafólki - kr. 25.800
Hjá verslunar og skrifstofufólki - kr. 19.500
Starfsmenn sveitarfélaga - kr. 25.800
Hjá iðnaðarmönnum - kr. 25.800
Iðnnemar fá sömu orlofsuppbót og aðrir.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningadálknum á síðunni

Deila