Translate to

Fréttir

Orlofshús Verk Vest á Spáni - Sumarbókanir

Þar sem ferðatakmörkunum vegna Covid 19 hefur verið létt mjög víða og fólk farið huga að sumarleyfum þá er rétt að benda á að sumarhús Verk Vest á Spáni hefur verið opnað til bókana fyrir sumartímabil 2022. Leigutímabil að sumri eru tvær vikur en vilji fólk vera lengur er mögulegt að leigja tvö tímabil.

Rétt er að benda á að húsið er líka opið til bókana yfir vetrartímann og þó svo Páskar séu uppbókaðir í ár þá eru mörg önnur tímabil laus. Verð í vetrarleigu er mjög hagstætt og sem dæmi þá kostar 3ja vikna leiga einungis 110.000 kr. með skilagjaldi.

Í húsinu er gistipláss fyrir 6 og eru tvö svefnherbergi með gistingu fyrir 4 en í stofu er tvíbreiður svefnsófi. Í hjónaherbergi er einnig ferðabarnarúm. 

Hér má svo finna frekari upplýsingar um húsið

Skiptidagar sumar 2022 eru þriðjudagar og hefst leigutímabilið þriðjudaginn 31. maí. Verð fyrir tvær vikur er 103.000 kr. en 193.000.kr. fyrir fjórar vikur. 

Hús félagsins er í raðhúsahverfinu Altomar III í Los Arenales sem er úthverfi Alicanteborgar. Mjög gott útsýni er til Alicante frá ströndinni í Arenales sem er samfelld alveg til Alicante. Húsið okkar heitir Vinaminni er nr. 13 á jarðhæð í raðhúsahverfinu Altomar III í Arenelas. Húsinu fylgir stór lokuð útiverönd ásamt bílastæði í lokuðu bílastæðishúsi.

Best er að notast við hlið nr.123, þaðan eru örfá skref að íbúðinni. Húsið stendur um 400 metra frá strönd en strætó stoppar við raðhúshverfið, einnig stoppar strætó sem fer út á flugvöll á sama stað. Við strandgötuna er fjöldi veitingastaða og verslana þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Á ströndinni eru einnig nokkrir strandbarir fyrir sólarþyrsta ferðamenn.

Ekki er hægt að bóka húsið beint á orlofsvef og þarf því að hafa samband við skrifstofu félagsins fyrir bókanir annaðhvort í síma 456 5190 eða postur@verkvest.is

 

 

Deila