Nú styttist í að félagsmenn hjá Verk Vest eigi að fá greiddda
orlofsuppbót fyrir orlofsárið 2013 sem hófst þann 1. maí. Orlofsuppbót
innifelur orlof, eru föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum
ákvæðum.
Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og
starfstíma á orlofsárinu (1. maí til 30. apríl), öllum starfsmönnum sem
verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12
mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí. Áunna
orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau
fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir
utan orlof.
Orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2013 er:
Kjarasamningur SGS og SA (almenni markaður):
kr. 28.700-.Kjarasaningur Verslunar og skrifstofufólks:
kr. 21.600,-Rétt er að benda verslunar- og skrifstofufólki á
reiknivélfyrir orlofsuppbót á heimasíðu VR.
Kjarasamningur Iðnaðarmanna:
kr. 28.700,- ( Iðnnemar fá sömu orlofsuppbót)
Kjarasamningur SGS við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
kr. 28.700-.
Kjarasamningur SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga
kr. 38.000-.