Örvun hagkerfisins nauðsynleg
Almenningur hefur ítrekað kallað eftir stefnu og aðgerðum ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum en lítið hefur sést á spil þeirra sem halda um stjórnartaumana er varðar skýra stefnu um aðgerðir.
..."Það eru engar ýkjur að segja að þátttöku ríkisins í þessum viðræðum hafi sárlega vantað, og taka þannig undir með ályktun Kennarasambands Íslands frá 22. janúar sl. Enda hafa bæði samtök launþega og vinnuveitanda reynt að koma auga á stefnu og sýn ríkisstjórnarinnar í þessum viðræðum án árangurs. Þar er einnig hvatt til að samstaða launþega og samtaka þeirra haldi áfram á þessum erfiðu tímum. Öllum ætti að vera ljóst að það er samtakamáttur og ekkert annað sem mun skila launþegum árangri í viðræðum við vinnuveitendur. Baklandið þarf að þjappa sér saman og styðja við forustuna jafnframt því að veita henni nauðsynlegt aðhald með gagnvirkri umræðu um kjaramálin." Enn fremur segir í niðurlagi pistilsins ..."Almenningur hefur kallað eftir stefnu og aðgerðum ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum. Það eitt að hafa örvun atvinnulífsins og hag heimilanna að leiðarljósi gæti skilað ríkisstjórninni nokkuð áleiðis í þessari baráttu. Þessi örvun myndi einnig skila tekjum í ríkissjóð, en aðgerðarleysi og botnfrosið atvinnulíf gerir það sannarlega ekki." Lesa má pistilinn hér í heild sinni.