Translate to

Fréttir

Rafræn atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall sjómanna í Verk Vest

Kosið um kjarasaming sjómanna 2008 Kosið um kjarasaming sjómanna 2008

Rafræn atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga hefst kl.14.00 í dag mánudaginn 19. september. Kosningin stendur til kl.12:00 mánudaginn 17. október.

  • Allir atkvæðisbærir félagsmenn/sjómenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga fá sent bréf um framvindu samningaviðræðnanna við SFS auk leyniorðs sem nota má við atkvæðagreiðsluna.
  • Félagsmaðurinn fer inn á heimasíðu Verkalýðsfélags Vestfirðinga www. verkvest.is og smellir þar á skilti sem á stendur:

Atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall sjómanna

  • Þá opnast þessi gluggi sem eftir innskráningu opnar leið að atkvæðaseðli:

 ATH. ekki verður hægt að greiða atkvæði fyrr en eftir kl.14:00 í dag.

rafr innsk 

Hægt er að auðkenna sig/skrá sig inn til að greiða atkvæði með því að slá inn kennitöluna sína og síðan leyniorðið sem viðkomandi fékk sent í kynningarbréfinu. Einnig er hægt að auðkenna sig beint með innskráningu á island.is þ.e. með Íslykli eða  rafrænum skilríkjum á farsíma. Þeir sem týna bréfinu með lykilorðinu og þeir sem kært hafa sig inn á kjörskrá geta einungis greitt atkvæði með innskráningu á island.is.

Opnast nú Atkvæðaseðill   Þar er merkt í      eða   Nei   eða   Skila auðu og atkvæðinu skilað með því að smella á „Skrá atkvæði“.

 

 rafrænn seðill

 

Félagsmaður sem telur sig eiga atkvæðisrétt en er ekki inni á kjörskrá verður að hafa samband við sitt félag og framvísa þar tilskyldum gögnum t.d. launaseðlum sem kjörstjórn tekur gild og úrskurðar í framhaldinu félagsmanninn inn á kjörskrá. Þá getur hann kosið en nú aðeins með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á farsíma eins og fyrr segir.

Deila