Translate to

Fréttir

Rískisstarfsmenn fengu 20.000 eingreiðslu 1. apríl

Í samkomulagi sem SGS undirritaði við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs 1. apríl 2014 var sérstaklega samið um eingreiðslu til handa þeim þeim starfsmönnum sem heyra undir kjarasamning SGS við ríkið. Eingreiðslan nemur 20.000 kr. og á að greiðast þann 1. apríl næstkomandi. Hún miðast við þá sem voru í fullu starfi í febrúar 2015, en þeir sem eru í hlutastarfi og/eða hafa starfað hluta úr mánuði skulu fá hlutfallslega greiðslu. 

Félagsmen í Verk Vest sem starfa hjá ríkisstofnunum hvort sem um er að ræða fullt starf eða hluta starf eru hvattir til að kanna hvort umrædd greiðsla hafi borist og gera athugasemdir ef greiðslan hefur ekki borist.

Hér má nálgast samkomulagið.

Deila