Translate to

Fréttir

SGS vísar kjaradeilu við SA til sáttasemjara

Að loknum fundi samningarnefndar SGS og Samtaka atvinnulífsins í dag var ljóst að mikið ber á milli viðsemjenda er varðar launaliðina. Samninganefnd SGS hefur því tekið þá ákvörðun að kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins væri vísað til ríkissáttasemjara sem mun í framhaldinu verða með verkstjórn viðræðnanna. Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt í lok fundar samninganefndar SGS.

"Í kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands (SGS) sem lögð var fyrir Samtök Atvinnulífsins í byrjun nóvember var lögð áhersla á hækkun lægstu launa. Lögð var til blönduð leið prósentu og krónutöluhækkana til að koma í veg fyrir það ranglæti að lægst launaða fólkið fengi minnst og það hæst launaða mest. Lagt var til að við lægstu taxtana bættust 20.000 krónur og þykir mörgum það vera hógvær krafa. Samtök atvinnulífsins hafnaði kröfunum samstundis.


Í kjölfarið ákvað samninganefnd Starfsgreinasambandsins að freista þess að fara í viðræður við SA í samfloti við önnur landssambönd undir hatti samninganefndar ASÍ. Nú er komið í ljós að SA leggst ennþá eindregið gegn tilraunum til að hækka lægst launaða fólkið á vinnumarkaði með krónutöluhækkunum og við það getur hvorki samninganefnd ASÍ né samninganefnd SGS unað.


Samninganefnd SGS hefur því ákveðið að vísa kjarasamningsviðræðum til ríkissáttasemjara enda er talið vonlítið um frekari árangur í samningaumleitunum. Jafnframt verður aðgerðarhópur SGS kallaður saman í framhaldinu."

Deila