Translate to

Fréttir

SUMARÚTHLUTUN ORLOFSHÚSA

Þann 21. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir sumarið 2022.

Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins  http://orlof.is/verkvest/ og sótt um með því að velja: Sumar.

Félagið á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2022. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2021. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Einarsstaðir á héraði

Flókalundur í Vatnsfirði

Illugastaðir í Fnjóskadal

Svignaskarð í Borgarfirði

Ölfusborgir við Hveragerði

Orlofshúsin eru leigð í viku frá föstudegi til föstudags. Hægt er að sækja um eina viku með allt að fjórum valmöguleikum. Verð fyrir viku er 30.000.kr. Félagsmaður þarf að eiga að lágmarki 36 punkta til að geta sótt um.

Umsóknarfrestur rennur út 10. apríl 2022

Fyrsta úthlutun fer fram  12. apríl og munu allir þeir sem sóttu um fá senda niðurstöðu úthlutunarinnar í tölvupósti.

Starfsfólk  mun aðstoða félagsmenn eftir þörfum við umsóknir á vefnum í síma 456 5190

Félagið á einnig hlut í orlofshúsi á Spáni og er það leigt í tvær vikur í senn að sumrinu, frá þriðjudegi til þriðjudags. Sumarleiga á Spáni er óbreytt og er leiguverð fyrir tvær vikur er kr. 103.000 og er skilagjald innifalið í leiguverði. Ekki þarf að eiga punkta til að panta húsið. Hér er hægt að skoða laus tímabil á Spáni, en íbúðin en eingöngu bókanleg í gegnum Verk Vest í síma 456 5190.

Á orlofsvef félagsins er einnig hægt að kaupa, hin ýmsu kort og ferðaávísanir á gistiheimilum og hótelum víðs vegar um landið. Ferðaávísunin er inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum okkar og nú í fyrsta sinn er einnig hægt að nota hana til að kaupa gönguferðir með Ferðafélagi Íslands, Fjallafjöri og Útivist. Við kaupin fær félagsmaður hlutfallslega niðurgreiðslu frá Verk Vest.

Deila