Translate to

Fréttir

Sævar Gestsson heiðraður á Sjómannadag

Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest, ásamt Sævari Gestssyni og Sr. Magnúsi Erlingssyni Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest, ásamt Sævari Gestssyni og Sr. Magnúsi Erlingssyni
Sævar Gestsson ásamt Sr. Magnúsi Erlingssyni við Sjómannastyttuna á Ísafirði Sævar Gestsson ásamt Sr. Magnúsi Erlingssyni við Sjómannastyttuna á Ísafirði
Sævar Gestsson ásamt eiginkonu sinni, Rögnu Arnaldsdóttur við Sjómannastyttuna á Ísafirði Sævar Gestsson ásamt eiginkonu sinni, Rögnu Arnaldsdóttur við Sjómannastyttuna á Ísafirði
Finnbogi sýnir gestum heiðursgripinn Finnbogi sýnir gestum heiðursgripinn
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest, ásamt Sævari Gestssyni og Sr. Magnúsi Erlingssyni Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest, ásamt Sævari Gestssyni og Sr. Magnúsi Erlingssyni

Að gömlum sið var heiðraður í sjómaður í Sjómannamessu á Sjómannadag, og fyrir valinu varð heiðursmaðurinn Sævar Gestsson.

Sævar er fæddur og upp alinn á Ísafirði. Sína fyrstu vinnu á sjó fékk hann aðeins 11 ára gamall og hefur verið viðloðandi sjómennsku alla tíð síðan.

Kjaramál sjómanna hafa lengi verið Sævari hugleikin, en árið 1976 var hann kosinn í Sjómannadagsráð, árið 2000 var hann svo kosinn formaður Sjómannafélags Ísfirðinga, og eftir að Sjómannafélagið rann inn í Verk Vest hefur Sævar verið formaður Sjómannadeildar félagsins. Framlag Sævars til kjarabaráttu og öryggismála sjómanna er ómetanlegt og enn er engan bilbug að finna á honum. Sævar hefur setið í framkvæmdastjórn Sjómannasambands Íslands um áratuga skeið og er alltaf fyrstur á vettvang þegar verkefni tengd sjómönnum koma inn á borð Verk Vest og víkur sér aldrei undan.

Sem þakklætisvott afhenti Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest, Sævari fallegan grip sem sjómannsdóttirin Dýrfinna Torfadóttir bjó til í tilefni þessa, en er Heiðursorða Sjómannadagsráðs samofin gripnum.

Sævari eru þökkuð ómetanleg störf í þágu sjómanna allra sem hann hefur sinnt af mikilli staðfestu og prýði.

Deila