Translate to

Fréttir

Samkomulag um að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi

Erna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri SAF fer yfir málefni ferðaþjónustunnar Erna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri SAF fer yfir málefni ferðaþjónustunnar

Á málþingi um óskráða vinnu og ófagleg vinnubrögð í ferðaþjónustu, sem haldið er á hótel Reynihlíð við Mývatn, var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf til að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi í ferðaþjónustugreinum. Með undirritun viljayfirlýsingarinnar er stigið mikilvægt skref í því að taka á því samfélagsmeini sem svört atvinnustarfsemi er. Starfsgreinasamband Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðaþjónusta bænda, embætti  Ríkisskattstjóra  og Vinnumálastofnun  standa að yfirlýsingunni um samstarf til að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi í ferðaþjónustugreinum. Það voru þau Kistján Gunnarsson, formaður SGS, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda, Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar og Jóhann Ásgrímsson, fulltrúi Ríkisskattstjóra sem undirrituðu yfirlýsinguna sem hér fer á eftir;

 

„Starfsgreinasamband Íslands, f.h. aðildarfélaga sinna, Samtök Ferðaþjónustunnar, Ferðaþjónusta bænda, embætti  Ríkisskattstjóra  og Vinnumálastofnun lýsa vilja sínum til samstarfs til þess að vinna gegn óskráðri svartri atvinnustarfsemi  í ferðaþjónustugreinum, þ.e. í veitinga-  og gistihúsum, greiðasölu og hliðstæðri starfsemi.

 

Það er markmið samstarfsins að hvarvetna sé fylgt ákvæðum kjarasamninga í ferðaþjónustugreinum og að leikreglur á vinnumarkaði séu virtar. Markmiðinu hyggjast samstarfsaðilar ná með markvissu vinnustaðaeftirliti, gegnsæi og miðlun upplýsigna milli aðila. Samstarfsaðilarnir hvetja vinnuveitendur og starfsfólk til þess að virða reglur um vinnustaðaskírteini þar sem þau auðvelda m.a. gegnsæi í því sambandi að um lögmæta, skráða atvinnustarfsemi sé að ræða á viðkomandi vinnustað."

Deila