Translate to

Fréttir

Samninganefnd Verk Vest lýsir yfir stuðningi við aðgerðarhóp SGS

Frá umræðum á fundinum Frá umræðum á fundinum
Gjalkeri og ritari fara yfir stöðuna Gjalkeri og ritari fara yfir stöðuna
Júlíus og Anne Berit einbeitt á svip Júlíus og Anne Berit einbeitt á svip
Á fundi stjórnar og trúnaðarráðs Vest Vest, sem er einnig samninganefnd félagsins, var samþykkt að lýsa yfir fullum stuðningi við yfirlýsingu sem aðgerðarhópur SGS sendi frá sér þann 27.apríl síðast liðinn. Á fundinum var einnig skipaður aðgerðarhópur félagsins sem er ætlað að hafa umsjón með aðgerðum og vera tengiliður við landssambönd ASÍ vegna verkfallsaðgerða. Mjög líflegar og heitar umræður sköpuðust um þá stöðu sem kjarasamningsviðræðurnar  væru komnar í og var forystu LÍÚ ekki vandaðar kveðjurnar. Þá sköpuðust einnig nokkuð fjörugar umræður um ört hækkandi eldsneytisverð og samþykkti fundurinn að senda frá sér eftirfarandi áskorun til stjórnvalda.

„ Fundur stjórar og trúnaðarráðs Verk Vest haldinn fimmtudaginn 28.apríl 2011 skorar á stjórnvöld að lækka nú þegar álögur á eldsneyti á ökutæki. Hið háa verð eldsneytis ógnar búsetuskilyrðum í hinum dreifðu byggðum landsins"

Deila