Translate to

Fréttir

Samningar við ríki og sveitarfélög samþykktir með afgerandi meirihluta

Ríkisstarfsmenn á Þingeyri Ríkisstarfsmenn á Þingeyri

 

Kjarasamningar Starfsgreinasambandsins við ríkið annars vegar, sem undirritaður var 3. júlí s.l. og hins vegar við Launanefnd sveitarfélaga f.h. viðkomandi aðildarfélaga frá 7. júlí voru samþykktir með miklum mun í póstakvæðagreiðslum sem nú er lokið. Samningurinn við ríkið var samþykktur með 83% greiddra atkvæða og 88% þeirra sem þátt tóku í atkvæðagreiðslunni um sveitarfélagasamninginn samþykktu þann samning.


Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS við ríkið (SNR) fór þannig:

Á kjörskrá voru 1810

Atkvæði greiddu 441 eða 24,4%

Já sögðu 366 eða 83%

Nei sögðu 72 eða 16,3%

Auðir seðlar 3 eða 0,7%

Samningur SGS við SNR frá 3. júlí 2009 er því samþykktur.

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS við Launanefnd sveitarfélaga fór þannig:

Á kjörskrá voru 1842

Atkvæði greiddu 496 eða 26,9%

Já sögðu 437 eða 88,1%

Nei sögðu 55 eða 11,1%

Auðir seðlar 4 eða 0,8%

Samningurinn SGS við LNS frá 7. júli 2009 er því samþykktur.

Deila