Fulltrúi frá fræðslusjóði sjómanna "Sjómennt" er á flandri um landið til að kynna fyrir sjómönnum ýmiskonar möguleika til náms, hvort heldur er starfstengt nám eða tómstundanám. Yfirskrift átaksins er "
Ánægður sjómaður er betri starfskraftur". En megin markmið Sjómenntar er að auka hæfni sjómanna með starfstengdu námi en einnig að endurnýja þekkingu og þannig efla sjómenn í starfi. Sigríður Kristinsdóttir hefur verið ráðin í átaksverkefni fyrir sjóðinn sem felst í því að kynna þá námsmöguleika sem eru í boði auk þess að kynna námsleiðir sem og hver réttur sjómanna er til náms- og tómstundastyrkja hjá sjóðnum. Eru kynningar ýmist haldnar um borð í skipum eða hjá fræðslumiðstöðvum víða um land. Kynningafundirnir eru í nánu samstarfi við útgerðir og stéttarfélög sjómanna enda báðir aðilar að sjóðnum. Mjög vel var mætt á kynningarfund fyrir áhöfnina á Páli Pálssyni frá Hnífsdal sem haldinn var hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í dag, en ætlunin er að vera með fleiri kynningar hjá útgerðum og áhöfnum á félagssvæði Verk Vest nú fyrir jól.