Translate to

Fréttir

Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni játaði sök fyrir dómi; málinu lokið

Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni í hinni margumtöluðu Covid-veiðiferð í september og október sl. játaði sök í málinu fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í gær. Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur ekki enn upplýsingar frá fyrstu hendi varðandi málið, en samkvæmt upplýsingum félagsins var skipstjórinn dæmdur til vægrar sektargreiðslu og missi skipstjórnarréttinda í fjóra mánuði.

Skipverjum er mjög létt við að málinu sé að ljúka, en óvissan hefur verið skipverjum þungbær. Að því gefnu að upplýsingar félagsins séu réttar er allur vafi tekinn af varðandi réttarstöðu þeirra skipverja sem staðið hafa í veikindum í veiðiferðinni og í kjölfar hennar, en útgerð er ábyrg fyrir ákvörðunum skipstjóra valdist skaði af. Heilsufar flestra skipverja hefur sem betur fer verið að þokast til betri vegar, en þeir sem enn glíma við veikindi eru nú í vissu um að þeir haldi launum til jafns við það sem þeir hefðu haft væru þeir vinnufærir og heilir heilsu.

Skipverjar sem hafa haft samband við félagið eru mjög undrandi á því að þeir hafi gengið gegnum tímabil þar sem þeir töldu lífi og heilsu ógnað, og sjá svo að refsingin sem skipstjórinn er dæmdur til sé ekki ólík refsingu fyrir samlokustuld í Krónunni. Það sem minna er í dagsljósinu er sú þjáning sem skipstjórinn hefur orðið fyrir vegna sinna mistaka, ekki ásetningsbrots, heldur mistaka og dómgreindarleysis. Í þessu máli hafa allir tapað og er það von félagsins að íslenskir sjómenn þurfi aldrei að upplifa slíkt um ókomna tíð.

Nú er liðið vel á þriðja mánuð frá því þessari örlagaríku veiðiferð lauk og þrátt fyrir batnandi heilsu flestra skipverja á það ekki við um alla, en of snemmt er að segja til um hvort allir nái fullri heilsu á ný. Allir sem að málinu koma gera sitt besta til að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur, en ekki er hægt að líta framhjá því að hvorki er um slys né veikindi af eðlilegum orsökum að ræða. Teknar voru rangar ákvarðanir sem ollu skipverjum alvarlegum skaða. Samfélagslegur kostnaður af þessu er nú þegar orðinn gífurlegur sem og fjárhagsskaði útgerðar. Álitshnekkur fyrir svæðið í heild sinni verður ekki metinn til fjár.

Deila