Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum afhent Héraðsskjalasafninu, Ísafirði
Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum var formlega afhent Héraðsskjalsafninu Ísafirði við athöfn í Baldurshúsinu, Pólgötu 2 Ísafirði, föstudaginn 22. september. Skjalasafnið telur 524 skjalaöskjur sem skráðar eru í 34 deildir verkalýðsfélaga, stofnana, fyrirtækja og samtaka sem félögunum tengjast. Safnið geymir skjöl Alþýðusambands Vestfjarða frá stofnun þess 1927 og einstakra félaga sem störfuðu innan þess, allt til stofnunar Verkalýðsfélags Vestfirðinga á árunum 2002-2005. Afhending safnsins er ein stærsta einstaka afhending sem Héraðsskjalsafninu hefur verið færð og einstök að því leyti að safnið er frágengið, flokkað og skráð þannig að það er tilbúið til notkunar fyrir fræðimenn og aðra áhugasama.
Við formlega afhendingu safnsins sagði Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga að í kjölfar þess að Verk Vest tók yfir hlutverk Alþýðusambands Vestfjarða árið 2016, hafi stjórn félagsins ákveðið að afhenda skjalasafn Alþýðusambands Vestfjarða og aðildarfélaga þess til varðveislu í Héraðsskjalasafninu og tryggja þar með örugga varðveislu og aðgang að safninu. Við flutning skrifstofu félagsins úr Baldurshúsinu Pólgötu 2 var ákveðið að félagið héldi áfram því starfi sem áður fór fram á vegum ASV og léti skrá skjalasafn sambandsins, aðildarfélaga þess og skrifstofu verkalýðsfélaganna til þess tíma sem 12 félög ASV sameinuðust í Verkalýðsfélag Vestfirðinga á árunum 2002-2005. Sigurður Pétursson sagnfræðingur vann að skráningu safnsins og með honum Sigrún María Árnadóttir. Finnbogi sagði það ánægjulegt að geta nú afhent safnið frágengið og klárt í hendur Héraðsskjalsafnsins.
Jóna Símonía Bjarnadóttir yfirmaður safnamála í Ísafjarðarbæ og Guðfinna M. Hreiðarsdóttir skjalavörður tóku við gjöfinni fyrir hönd Héraðsskjalasafnsins. Sögðu þær að safnið væri stærsta einstaka afhending til safnsins frá stofnun þess. Þá lýstu þær sérstakri ánægju með að frágangur safnsins og nákvæm skráning tryggði að aðgangur að safninu yrði mögulegur strax frá fyrsta degi.
Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum varð til í tengslum við skráningu á sögu verkalýðshreyfingarinnar í fjórðungnum sem hófst á vegum Alþýðusambands Vestfjarða í árslok 2002. Þegar vinna við söguritun félaganna hófst var ljóst að mikið starf þurfti að inna af hendi við flokkun og skráningu ýmissa gagna sem félögin höfðu látið eftir sig. Söfnun heimilda um starfsemi félaganna vítt og breitt um Vestfirði fór fram samhliða því að félögin sameinuðust í eitt verkalýðsfélag sem teygir sig til allra Vestfjarða. Skjalasafninu bárust aðföng víða að, allt frá Hólmavík og Drangsnesi til Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals. Gögnum verklýðsfélaga á Ísafirði, í Hnífsdal, Bolungarvík og Súðavík, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri var safnað saman, þau flokkuð og skráð. Þá hafa gjörðabækur verkalýðsfélaga sem áður störfuðu í Sléttuhreppi, Árneshreppi og Flatey, sem finnast í Þjóðskjalsafninu, verið ljósrituð. Auk þessa hafa gögn frá stofnunum, fyrirtækjum og stjórnmálafélögum í tengslum við verkalýðshreyfinguna verið skráð. Má þar nefna skjalasafn Alþýðuhúss Ísfirðinga, Jólatrésnefndar stéttarfélaganna, 1. maí nefndar og Skrifstofu verkalýðsfélaganna. Innan einstakra skjalasafna má finna skjöl bæði stofnana og einstaklinga sem tengjast starfsemi félaganna, til dæmis skjöl Sjómannadagsins á Ísafirði í safni Sjómannafélags Ísfirðinga og safn Sigurðar E. Breiðfjörð hjá Brynju á Þingeyri.
Alls eru deildir safnsins 34. Það eru Alþýðusamband Vestfjarða, verkalýðsfélög, stofnanir og fyrirtæki í eigu verkalýðsfélaganna og stjórnmálafélaga. Stærstu söfnin eru safn ASV, Verkalýðsfélagsins Baldurs Ísafirði og félaganna á Patreksfirði, Hólmavík, Þingeyri og Flateyri og Verslunarmannafélags Ísafjarðar. Það eru þau félög sem starfrækt hafa eigin skrifstofu um lengri eða styttri tíma. Önnur söfn eru þunnskipuð. Innan hvers skjalasafns eru skjölin flokkuð í gjörðabækur, bréfasafn, málasafn og önnur gögn. Þannig verða söfnin aðgengileg áhugafólki og fræðimönnum til notkunar í framtíðinni.
Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum geymir eftirtalin söfn:
Safnanúmer - heiti félags/samtaka stærð safnsins
1 Alþýðusamband Vestfjarða (ASV) 76 öskjur
2 Skrifstofa verkalýðsfélaganna á Ísafirði 12 öskjur
3 Skutull 4 öskjur
11 Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna á Ísafirði 1 askja
12 Alþýðuhús Ísfirðinga - Ísafjarðarbíó 20 öskjur
13 Jólatrésnefnd stéttarfélaganna á Ísafirði 1 askja
14 1. maí nefnd verkalýðsfélaganna á Ísafirði 1 askja
15 Styrktarnefnd stéttarfélaganna (með númer 14)
21 Verkalýðsfélagið Baldur, Ísafirði 60 öskjur (+ 3 bækur)
22 Sjómannafélag Ísfirðinga 20 öskjur
23 Vélstjórafélag Ísafjarðar 7 öskjur
24 Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði 8 öskjur
26 Verslunarmannafélag Ísafjarðar 21 öskjur
27 Sveinafélag byggingamanna, Ísafirði 13 öskjur
31 Verkalýðs- og sjóm.félag Hnífsdælinga 3 öskjur
33 Verkalýðs- og sjóm.f. Álftfirðinga, Súðavík 25 öskjur
34 Verkalýðsfélag Sléttuhrepps 1 askja
36 Verkalýðsfélagið Brynja, Þingeyri 33 öskjur
37 Verkalýðsfélagið Skjöldur, Flateyri 37 öskjur
38 Verkalýðs- og sjómannafélagið Súgandi 12 öskjur
39 Verslunarmannafélag Bolungarvíkur 10 öskjur
41 Verkalýðsfélag Patreksfjarðar 56 öskjur
42 Verkalýðsfélagið Vörn, Bíldudal 16 öskjur
43 Verkalýðs- og sjómannafélag Tálknafjarðar 7 öskjur
44 Verkalýðs- og sjómannafélagið Grettir, Reykhólum 1 askja
45 Verkalýðsfélag Flateyjar 1 askja
51 Verkalýðsfélag Hólmavíkur 51 askja
52 Verkalýðs- og sjómannafélag Kaldrananeshrepps 11 öskjur
53 Verkalýðsfélag Árneshrepps 1 askja
60 Kjördæmisráð Alþýðufl. á Vestfjörðum 1 askja
61 Alþýðuflokksfélag Ísafjarðar 9 öskjur
62 Kvenfélag Alþýðuflokksins Ísafirði 1 askja
63 Alþýðuflokksfélag Hnífsdælinga 1 askja
71 Alþýðubandalagið á Vestfjörðum 3 öskjur
------------------------------------------------------------------------------------
Samtals: 34 deildir 524 öskjur