Smábátasjómenn samþykktu nýjan kjarasamning
Niðurstöður atkvæðagreiðslunar voru ótvíræðar, meðal sjómanna fór atkvæðagreiðslan þannig að 64,3% sögðu já og 35,7% sögðu nei. Hjá Landssambandi smábátaeiganda samþykktu 74% þeirra félagsmanna LS sem greiddu atkvæði samninginn, hjá LS var 25% þátttaka. Þetta er í fyrsta skipti sem samþykktur er kjarasamningur fyrir smabátaflotann á landsvísu. Ekki eru mörg ár síðan að sjósókn á smábátum var nánast eingöngu stunduð sem einmenningssjósókn og þá yfirleitt af eigendunum sjálfum.
Samþykkt kjarasamninganna er stór áfangi í réttindabaráttu smábátasjómanna þó svo einhverjir hafi ekki verið ánægðir með skiptakjör í nýja samningnum. Verk Vest óskar smábátsjómönnum til hamingju með áfangann en minnir jafnframt á að í samningnum er eingöngu kveðið á um lágmarkskjör í greininni.