Translate to

Fréttir

Stjón Verk Vest samþykkir stofnaðild að Starfsenfurhæfingu Vestfjarða

Stjónin að loknum góðum fundi Stjónin að loknum góðum fundi
Stjórnin að störfum Stjórnin að störfum
Gunnhildur frá Þingeyri, Ólafur frá Ísafirði og Eva frá Drangsnesi þungt hugsi ! Gunnhildur frá Þingeyri, Ólafur frá Ísafirði og Eva frá Drangsnesi þungt hugsi !
Stjórnarfundur Verk Vest var haldinn á Kaffi Rís á Hólmavík laugardaginn 16. ágúst. Góð mæting deildarformanna víða af félagssvæðinu var á fundinn þrátt fyrir að um langan veg væri að fara hjá sumum fundarmanna.  Á fundinum voru til umfjöllunar fjölmörg álitamál er varða bæði daglegan rekstur félagsins og þjónustu við félagsmenn sem og málefni er varða framtíðarskipulag félagsins og þátttöku þess í stofnun Starfsendurhæfingar Vestfjarða. 

Stjórn félagsins hafði áður samþykkt að félagið tæki þátt í undirbúningsvinnu við að koma starfsendurhæfingunni á laggirnar. Í framhaldi af þeirri vinnu og fyrri ákvörðun stjórnar var ákveðið að Verkalýðsfélag Vestfirðinga yrði stofnfélagi í Starfsendurhæfingu Vestfjarða. Var það mál fundarmanna að koma slíkri endurhæfingu á fót í heimabyggð væri mikill fengur fyrir þá félagsmenn sem þurfa á aðstoð að halda þegar kreppir að vegna langvarandi veikinda af ýmsum toga.
Vonast undirbúningshópur starfsendurhæfingarinnar til að hægt verði að halda stofnfund í September næst komandi og næsta skref væri að auglýsa eftir  starfsmanni endurhæfingarinnar. 

Þá var einnig samþykkt á fundinum að fasteign félagsins á Hólmavík yrði auglýst til sölu, en fasteignin hefur verið í útleigu undanfarin misseri.  Þá voru nýgerður kjarasamningur fyrir beitningarfólk og stofnanasamningur fyrir starfsfólk Vegagerðarinnar einnig lagði fram til kynningar.    
Deila