Frá trúnaðarráðsfundi s.l. vetur
Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur boðað stjórn og
trúnaðarráð félagsins til fundar annað kvöld, þriðjudaginn 20.september
kl.20.00 í húsi félagsins á Ísafirði. Tilefni fundarins er kynning Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða á atvinnuvegatölum fyrir fjórðunginn. Shiran Þórisson verkefnastjóri Vaxtasamnings
Vestfjarða mun sjá um kynninguna fyrir hönd Atvest. Að lokinni yfirferð Shirans
verður eftirfarandi dagskrá:
1.
Kynning á atvinnuvegatölum fyrir Vestfirði
2.
Trúnaðarmannanámskeið 6 -7. október
3.
Formannafundur ASÍ 26. Október
4.
Mjólkursamlagið
5.
Önnur mál