Translate to

Fréttir

Stjórnarkjör 2011

Samkvæmt 15 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2011 til 2013 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.

Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og tveimur til vara eða tillögum um einstaklinga í eitthvert, einhver eða öll stjórnarsætin sem kjósa skal til samkvæmt lögum félagsins. Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 25 fullgildra félagsmanna.

Listi stjórnar og trúnaðarmannaráð liggur frammi á skrifstofu félagsins og er einnig aðgengilegur hér á síðunni.

Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Pólgötu 2, Ísafirði eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 19. apríl 2011.

Ísafirði 4. apríl 2011,
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
Deila