Translate to

Fréttir

Stjórnarkjör Verk Vest 2013

Samkvæmt 15 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2013 til 2015 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.

Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og tveimur til vara eða tillögum um einstaklinga í eitthvert, einhver eða öll stjórnarsætin sem kjósa skal til samkvæmt lögum félagsins. Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 25 fullgildra félagsmanna.

A -listi, sem er tillaga trúnaðarráðs liggur frammi á skrifstofu félagsins.

Listum eða tillögum ber að skila til formanns kjörstjórnar hjá skrifstofu félagsins Pólgötu 2, Ísafirði eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 15. mars 2013.

Ísafirði 1. mars 2013,
Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Deila