Translate to

Fréttir

Stjórnvöld svíkja almennt launafólk

Á 100 framkvæmdastjórnarfundi SGS, Starfsgreinasambands Íslands var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða.

"Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands harmar að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ætli að svíkja loforð um jöfnun lífeyrisréttinda á milli almenna og opinberra lífeyriskerfisins sem gefin voru við undirritun kjarasamninga í vor.

Áformum stjórnvalda um skattlagninu á lífeyrissjóði er harðlega mótmælt, enda munu þau leiða til skerðingar á lífeyrisréttindum á almennum vinnumarkaði og um leið auka frekar á þann ójöfnuð sem er á lífeyrisréttindum á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Fyrirhuguð skattlagning snertir eingöngu almennu lífeyrissjóðina þar sem ríkið er skuldbundið bæta opinberu sjóðunum upp skattlagninguna með auknum inngreiðslum sem teknar verða af skattfé almennings.

Þá mótmælir framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands einnig harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um að hækka bætur almanna- og atvinnuleysistrygginga helmingi minna en lægstu laun hækka þrátt fyrir skrifleg loforð um að lífeyrisþegar og atvinnulausir skuli njóta hliðstæðra kjarabóta."
Deila