Stöðugleikasáttmáli og samkomulag um breytingar á kjarasamningi undirrituð
Má í því samhengi nefna að kjarasamningum hefði verið sagt upp af hálfu atvinnurekenda, kjaraviðræður hefðu farið á byrjunarreit, launahækkanir sem nú koma inn í áföngum gangi allt eftir væru út úr myndinni. Með þessu samkomulagi má því segja að um varnarsigur fyrir íslenskt launafólk hafi verið að ræða, sérstaklega þá tekjulægri. Af mörgum slæmum kostum við núverandi aðstæður, hefði sá kostur að standa uppi kjarasamningslaus verið sá langversti fyrir launþega. Nánari umfjöllun um sáttmálann og samkomulagið við SA má finna á heimasíðu SGS, þá er einnig viðtal við Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ á vef Alþýðusamabandsins.