Translate to

Fréttir

Sveitafélögin hækka gjald á sundferðum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1.janúar 2014 til 1. febrúar 2015. Öll nema Árborg, sem var með eitt hæsta gjaldið fyrir, hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna, mesta hækkunin var hjá Reykjanesbæ eða um 38%. Árskort fullorðinna hefur einnig hækkað í verði hjá 11 sveitarfélögum af 15.

10 miða kort hefur hækkað í verði hjá 13 sveitarfélögum af þeim 14 sem selja slík kort. Hæst er það á 4.700 kr. í Kópavogi en lægst á 3.400 kr. í Vestmannaeyjum sem er 38% verðmunur. Kortið hefur mest hækkað um 14% Seltjarnarnesi og Akureyri.

Allt að 123% verðmunur er á hæsta og lægsta verði árskorts í sund. Hæsta verðið er 35.700 kr. hjá Fljótdalshéraði en lægsta verðið er 16.000 kr. hjá Ísafjarðabæ sem er 19.700 kr. verðmunur. Árskortið hækkar mest um 14% hjá Reykjanesbæ úr 22.000 kr. í 25.000 kr. eða um 3.000 kr.

13 sveitarfélög af þeim 15 sem voru skoðuð eru með gjaldskrá fyrir börn, en oft er frítt inn fyrir börn sem búsett eru í sveitarfélaginu. Sjö þeirra hafa hækkað verð á stakri ferð í sund á milli ára. Hæsta gjaldið fyrir eina staka sundferð er 290 kr. hjá Ísafjarðabæ en lægst er gjaldið á 120 kr. á Seltjarnarnesi sem er 170 kr., verðmunur eða 142%.

10 miða kort fyrir börn kostar mest 2.275 kr. á Ísafirði en lægst er það á 870 kr. í Hafnarfirði. Mesta hækkun á 10 miða korti er 10% hjá Garðabæ og Fljótdalshéraði. 

Nánari upplýsingar um verðkönnunina má finna á heimasíðu ASÍ.

Deila