Sveitarfélagið verður starfsfólki þjónustudeildar á Hlíf innan handar
Formaður félagsins átti símafund með bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar fyrr í dag þar sem kom fram að bærinn væri boðinn og búinn við að aðstoða starfsólkið við leit að öðrum störfum hjá Ísafjarðarbæ, sé um sambærileg störf að ræða. Þetta hafi einnig komið fram á fundi sem haldinn var með starfsfólki þjónustudeildarinnar fyrr í síðustu viku. Þar kom einnig fram að öll þjónusta við starfsfólk sem hægt er að veita verði veitt. Þarna er vísað í sem dæmi, ef starfsmaður þarf að losna áður en kjarasamningsbundnum uppsagnarfresti lýkur þá muni sveitarfélagið liðka til svo það megi verða. Trúnaðarmaður starfsfólks hefur ákveðið að boða til fundar með starfsfólki og formanni félagsins síðar í þessari viku.