Translate to

Fréttir

Sýnum starfsfólki við afgreiðslu- og þjónustustörf tillitsemi og kurteisi í jólaösinni

Í desember eykst álag á verslunar- og afgreiðslufólk mjög mikið og því vert að hafa í huga nokkur mikilvæg atriði er varða réttindi þeirra sem vinna við afgreiðslu- og þjónustustörf. Félagið vill beina því til viðskiptavina verslana, sérstaklega nú þegar jólaösin fera þyngjast að sýna starfsfólki kurteisi og tillitssemi. Hrós, bros og almenn tillitssemi kostar ekkert en bætir líðan okkar allra og sérstaklega þeirra sem þurfa að vinna undir miklu álagi. Að vanda hvetur félagið félagsmenn til að halda vel utan um skráningu vinnu tíma og bera saman við launaseðla.

Frídagar yfir hátíðarnar eru:
Eftir kl. 12 á aðfangadag (stórhátíðardagur)
Jóladagur (stórhátíðardagur)
Annar í jólum (almennur frídagur)
Eftir kl. 12 á gamlársdag (stórhátíðardagur)
Nýársdagur (stórhátíðardagur)

Ekki er vinnuskylda á þessum dögum og skulu launþegar halda sínum dagvinnulaunum óskertum. Auk þess má minna á að fyrsta vinnudag eftir jól skal dagvinna í verslunum hefjast kl. 10.

Matar- og kaffitímar

Hádegismatartími:  Á bilinu ½ - 1 klst. (háð samkomulagi).  Þessi matartími telst ekki til vinnutíma. Starfsfólk í verslunum þarf að vinna a.m.k. 5 klst. til að öðlast rétt til matartíma í hádeginu. 

Kvöldmatartími:  1 klst. ( á milli kl. 19 og 20) og telst til vinnutíma. Ef kvöldmatartíminn eða hluti hans er unninn skal greiða þann hluta með tvöföldu kaupi. Réttur til kvöldmatartíma miðast við a.m.k. 4,5 klst. vinnu.

Kaffitími: 35 mínútur á dag hjá afgreiðslufólki, (15 mín hjá skrifstofólki) miðað við fullan vinnudag.  Er veitt í beinu hlutfalli við vinnutíma starfsfólks í hlutastörfum.

Ef unnið er lengur en til kl. 22:00 skal veita annan 20 mínútna kaffitíma á tímabilinu kl. 22:00 - 22:20.  Á Þorláksmessu er heimilt að veita þann kaffitíma á bilinu kl. 21:40 - 22:20.

Daglegur hvíldartími

Á hverjum sólarhring á starfsmaður rétt á 11 klst. hvíld. Óheimilt er samkvæmt lögum að skipuleggja vinnu á þann hátt að vinnudagurinn sé lengri en 13 klst.

Frávik og frítökuréttur: Ef 11 klst. hvíld næst ekki skal veita hana síðar. Þannig safnast svokallaður frítökurétturupp. Fyrir hverja klst. sem 11 tíma hvíldin skerðist um öðlast starfsmaður 1,5 klst. í dagvinnu í frítökurétt.

Deila