Translate to

Fréttir

Þriðja skeiðið – réttindi og tækifæri

Fimmtudagskvöldið 10. mars, kl. 17 – 19 verður 3. erindið í fyrirlestraröðinni um Stéttarfélög, Starfsendurhæfing og Virk.

Finnbogi Sveinbjörnsson, Gabríela Aðalbjörnsdóttir, Harpa Kristjánsdóttir og Fanney Pálsdóttir fjalla um stéttarfélög, Starfsendurhæfingu og Virk.

Í erindum sínum munu þau vera með almenna kynningu á Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Félagi opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsendurhæfingu og Virk. Ennfremur hvernig þessir aðilar geta komið við sögu þegar fólk fer af vinnumarkaði í skemmri eða lengri tíma.

Erindin verða hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði, en verði þátttakendur á Hólmavík eða Patreksfirði verður notaður fjarfundabúnaður til að tengja fólk saman.

Skráning á námskeiðið fer fram hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Tími: Fimmtudagur 10. mars

Tími: Kl. 17 − 19.

Verð: 1.000 kr. á mann.

Deila