Translate to

Fréttir

Trúnaðarmannanámskeiði lokið

Lögfræðingurínn tekur á málunum Lögfræðingurínn tekur á málunum

 

Sameiginlegu námskeiði Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum lauk á föstudag með kynningu á starfsemi félaganna.  Leiðbeinendur á þessum seinni hluta námskeiðsins voru þau Magnús Norðdahl frá ASÍ og Jóna M. Ólafsdóttir frá Mími símenntun. Trúnaðarmenn frá báðum félögunum voru sammála um að þetta fyrirkomulag væri skemmtilegt og fræðandi. Þarna fengju þátttakendur innsýn inn á starfsvettvang beggja, bæði varðandi sameiginleg réttindi og eins þar sem kjarasamningar félaganna skarast. Hóparnir hvetja félögin til að halda þessu fyrirkomulagi áfram og bjóða upp á frekara nám strax í haust sem þegar er farið að huga að.
Deila