Translate to

Fréttir

Tvö sæti laus í Strandaferð 19. - 21. ágúst!

Kröfuganga á Hólmavík 1. maí Kröfuganga á Hólmavík 1. maí
Vegna forfalla eru laus tvö sæti í helgarferð Verk-Vest á Strandir 19. - 21. ágúst. Lagt verður af stað eftir hádegi á föstudaginn og ekið til Djúpuvíkur, þar sem gamla síldarverksmiðjan verður skoðuð. Gist á Hótel Djúpavík. Á laugardag verður farið í Gjögur, Norðurfjörð og Ingólfsfjörð og síðan Í Bjarnarfjörð þar sem gist verður á Hótel Laugarhóli.
Á sunnudaginn er ætlunin að koma við á Drangsnesi og síðan Hólmavík, þar sem Galdrasafnið verður skoðað.
Verðið er kr. 28.000 á mann.
Innifalið er rútuferð, leiðsögn og gisting í tvær nætur með morgun- og kvöldverði.
Notið tækifærið! Fyrstir koma - fyrstir fá.
Deila