Eins og skýrt var frá hér á vefnum á þriðjudag losnuðu vegna forfalla tvö sæti í ferð Verk-Vest á Strandir nú um helgina. Tveir félagsmnenn gripu tækifærið og skráðu sig, svo nú er orðið fullskipað í ferðina á ný. Lagt verður af stað eftir hádegi á morgun, föstudag.