Translate to

Fréttir

Úr mínus í plús - ekki veitir af !

Ákveðið hefur verið að bjóða félagsmönnum Verkalýðsfélags Vestfirðinga að taka þátt í námskeiðinu "Úr mínus í plús" félagsmönnum að kostnaðarlausu.  Námskeiðið verður haldið á Ísafirði 21. október nk. frá kl. 18:15 - 22:15.  Verið er að kanna möguleikana á því að fá samskonar námskeið á Hólmavík og Patreksfirði.  Má segja að tímasetning námskeiðsins gæti ekki hitt betur á eins og staðan er í þjóðfélaginu um þessar mundir og eru félagsmenn hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri.
Deila