Translate to

Fréttir

Vegið að jafnrétti til náms

„Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að fyrirhugaðar breytingar á umhverfi framhaldsskólanna, sem munu bitna af þunga á nemendum eldri en 25 ára, verði endurskoðaðar. Íslenskar aðstæður eru um margt sérstakar og varhugavert að heimfæra stöðuna á Norðurlöndum upp á Ísland. Hér á landi hefur ungt fólk haft aðgang að vinnumarkaðnum, ólíkt nágrannalöndunum, sem gerir það að verkum að oftar verður rof í námi. Brottfall er mikið og ber að vinna gegn því en ekki síður þurfa dyr skólanna að vera opnar fyrir endurkomu. Sú aldursmismunun sem ráðherra boðar með því að hefta endurkomu nemenda yfir 25 ára aldri inn í framhalsskólana verður til þess að takmarka möguleika fólks til menntunar og brýtur í bága við stefnu um hækkun menntunarstigs þjóðarinnar. Fækkun nemendaígilda kemur sérstaklega illa við fámennari framhaldsskóla og kippir jafnvel grundvellinum undan skólum í dreifðari byggðum.

Sú hugmynd að fólk eldra en 25 ára sæki frekar inn í fullorðinsfræðsluna væri meira sannfærandi ef fjármagn í fullorðinsfræðslunnar ykist í jöfnu hlutfalli. Svo er ekki og hættan er sú að nemendur eldri en 25 ára þurfi að greiða töluvert meira fyrir nám en áður í gegnum fullorðinsfræðslu og frumgreinadeildir.

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins krefst þess að menntamálaráðherra endurskoði þessa ákvörðun og leggist á árarnar með verkalýðshreyfingunni að hækka menntunarstig og loki ekki leiðum og möguleikum til þess að svo megi verða. Stöndum vörð um sveigjanleika menntakerfisins og möguleika allra til aukinnar menntunar og þar með lífsgæða.“

Deila