Translate to

Fréttir

Vel heppnað námskeið um félagsleg réttindi

Verkefnavinna í góðum gír Verkefnavinna í góðum gír
Leiðbeinandi námskeiðsins Fjóla Pétursdóttir hdl. Leiðbeinandi námskeiðsins Fjóla Pétursdóttir hdl.
Gunnhildur, Finnur og Sigrún fylgjast með af áhuga Gunnhildur, Finnur og Sigrún fylgjast með af áhuga
Verk Vest stóð fyrir mjög vel heppnuðu námskeiði um félagsleg réttindi á vinnumarkaði dagana 26 - 27. október.  Á námskeiðinu sem var haldið í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, var áhersla lögð á slit ráðningarsambands í sem víðustum skilningi. Var farið í þær grundvallar reglur sem gilda við uppsagnir, hverjir njóta verndar við uppsögn ásamt því hvernig stéttarfélög taka á ólögmætum uppsögnum. Námskeiðið var opið fyrir félagsmenn Verk Vest og var ágæt þátttaka nánast úr öllum starfsgreinum sem tengjast inn í félagið. Góður rómur var gerður að námsefni, uppbyggingu námskeiðsins og þeim verkefnum sem lögð voru fyrir þátttakendur. Trúnaðarmaður sem sótti námskeiðið sagðist hafa lært meira um félagsleg réttindi á þessu eina námskeiði en á þeim trúnaðarmannanámskeiðum sem Félagsmálaskólinn alþýðu hefur verið að bjóða upp á. Kennari á námskeiðinu var Fjóla Pétursdóttir hdl, sem var fyrrum lögfræðingur Starfsgreinasambands Íslands. Ljóst er af viðtökum þeirra sem tóku þátt í námskeiðinu að framhald mun verða á sambærilegu námskeiðahaldi hjá félaginu.
Deila