Translate to

Fréttir

Verð á ýsu hækkar um 5%

Mynd. Þorkell Þorkelsson Mynd. Þorkell Þorkelsson
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%. Verð á þorski og karfa er óbreytt frá síðustu ákvörðun. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag.
Deila