Translate to

Fréttir

Verðlaun fyrir rétta lausn á krossgátu

Ebba skrifstofustjóri afhendir Soffíu verðlaunin. Ebba skrifstofustjóri afhendir Soffíu verðlaunin.

Í dag voru afhent verðlaun fyrir rétta ráðningu á krossgátu Fréttablaðs Verk-Vest sem kom út í desember síðastliðnum. Nokkuð er liðið síðan dregið var úr réttum lausnum, en afhending hefur dregist.

Hvorki meira né minna en 25 réttar lausnir bárust og ein þeirra var dregin út. Úr pottinum kom lausn Soffíu Skarphéðinsdóttur og hún fær að launum ávísun á vikudvöl í einni af orlofsíbúðum félagsins, annaðhvort á Akureyri eða í Reykjavík.

Von er á næsta Fréttablaði í lok þessa mánaðar - og þar verður auðvitað verðlaunakrossgáta ásamt öðru efni, bæði til fróðleiks og skemmtunar.

Deila