Translate to

Fréttir

Verk Vest auglýsir eftir kjaramála- og þjónustufulltrúa

Skrifstofa félagsins á Ísafirði er í Hafnarstræti 9-13 Skrifstofa félagsins á Ísafirði er í Hafnarstræti 9-13

Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir eftir kjaramála- og þjónustufulltrúa með áherslu á vinnustaðaeftirlit hjá starfstöð félagsins á Ísafirði. Um 100% starf er að ræða en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Ábyrgðasvið:

  • Aðstoð í vinnuréttindamálum
  • Almenn þjónusta við félagsmenn
  • Umsjón með vinnustaaðaeftirliti
  • Umsjón netmiðlum félagsins
  • Skýrslugerð tengt kjaramálum
  • Aðstoð við innheimtu og rafrænum skráningum
  • Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á félagsstörfum og rík réttlætiskennd
  • Góðir samskiptahæfileikar og framúrskarandi þjónustulund
  • Hagnýt menntun sem nýtist í starfi
  • Hafa góða tölvukunnáttu og færni í upplýsinga og tæknimálum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumál kostur
  • Reynsla af uppgjörsvinnu og skýrslugerð
  • Þekking á Dk bókhaldskerfi er kostur

Nánari upplýsingar um starfið gefur Finnbogi Sveinbjörnsson í síma 456 5190 eða í tölvupósti á netfangið finnbogi@verkvest.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. mars nk.

Deila